Spurningaspilið Spurt að leikslokum er gefið út af Ekki Spurning ehf. í Reykjavík. Höfundar þess eru Ölvir Gíslason og Steinþór Steingrímsson. Þeir eru vanir spurningahöfundar og hafa mörg undanfarin ár staðið fyrir spurningaleikjum fyrir vinnustaði og félagahópa á höfuðborgarsvæðinu.
Ekki spurningu ehf. er því mikill akkur í því að hafa fengið þá félaga til liðs við sig við gerð Spurt að leikslokum.
Sérstaklega hefur verið vandað til verks við hönnun spilsins. Arna Fríða Ingvarsdóttir, grafískur hönnuður, hefur haft veg og vanda af því verki. Spilið er því ekki aðeins skemmtilegt til afþreyingar, heldur einnig fallegt í hillu eða á borði.