Haus
Um spilið Panta spilið Um okkur

 

Spurt að leikslokum – Fjölskyldupakkinn

Frískur, fjörugur og feiknaskemmtilegur fyrir alla aldurshópa!

Nú geta allir skemmt sér saman í spennandi spurningaleik. Enda hefur Spurt að leikslokum fjölskyldupakkinn að geyma á þriðja þúsund forvitnilegra spurninga um allt milli himins og jarðar – og fleira til! Í pakkanum eru fjögur spil, sem hægt er að spila hvert í sínu lagi eða öll saman. Allir ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi!

Eitt spilanna er ætlað yngri kynslóðinni, annað áhugamönnum um Fótbolta, spurningarnar í því þriðja eru um Popp – dægurmál og afþreyingu en Úr öllum áttum í því fjórða.


Smellið á myndirnar til að stækka þær
og fá frekari upplýsingar

Þeir sem þekkja Spurt að leikslokum spilið sem kom út árið 2009 ættu að kannast við sig. Spurningarnar eru við allra hæfi, endalaus uppspretta gleði, kátínu og fróðleiks.

Spurt að leikslokum - Fjölskyldupakkinn fæst í verslunum um land allt. Meðal annars í öllum verslunum Hagkaups og í Spilavinum á Langholtsvegi. Einnig er hægt að panta hann hér þar sem hann kostar kr. 4.990.

Sumir spila rassinn úr buxunum.
Aðrir spila Spurt að leikslokum.
Hvað gerir þú?

 
Spurt að leikslokum

Spurt að leikslokum er handhægt spurningaspil sem kom út sumarið 2009 og sló rækilega í gegn, enda magnað. Þú getur spilað það hvar sem er. Þú þarft ekkert spilaborð og enga teninga. Spurningaspjöldin og sérstök spilaspjöld eru allt sem þarf. Allt að tólf leikmenn geta spilað í senn. Spilið hentar því vel hvort sem margir eða fáir koma saman.

Spilið er í vandaðri öskju, 15x15x8 cm að stærð. Það kemst auðveldlega fyrir í bakpoka eða handtösku og hentar vel í fríið. Það breytir því þó ekki að fátt er skemmtilegra en að spila Spurt að leikslokum í góðra vina hópi í stofunni heima.

Í spilinu eru 1620 spurningar. Spurningunum er skipt í sex flokka:
1. Land, þjóð, tunga
2. Saga, landafræði, ferðalög
3. Bókmenntir, listir, menning
4. Náttúra, vísindi, matur
5. Popp, dægurmál, afþreying
6. Íþróttir, hobbí, sprell

Spurt að leikslokum kostar aðeins 3.990 krónur. Hægt er að panta það hér á síðunni.

 
Panta núna!


 

 

 

 

 

 




© Ekki spurning ehf. | Bergstaðastræti 10, Reykjavík | Sími 552 1900 | /span>sal@spurtadleikslokum.is
Panta spilid Um okkur